06.05.2006 10:41:02 / arnrun

Flutt...farin

Ég er komin með nóg og er farin annað...

www.arnrunsveins.bloggar.is

Sjáumst þar;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 14:31:35 / arnrun

Öpdeit...framhald

Það gleður mig að greina frá því að fjörfiskurinn í hægra auganu gafst upp á því að svamla þar eins og enginn verði morgundagurinn:) Hótaði greyinu botox sprautum sem myndu meiða hann óstjórnlega og draga til dauða og það virkaði...sjúkket!
Núna er ekkert því til fyrirstöðu að læra eins og vindurinn þannig að það er best að ég fari í það fljótlega;)

Knús út í loftið...
P.S. Kvitt myndi gleðja óskaplega;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 21:06:34 / arnrun

Öpdeit...

Sælinú!
Held að það sé kominn tími á smá fréttayfirlit...best að fleygja í ykkur einni spurningu fyrst: er ég sú eina sem hefur heyrt veðurfréttamennina segja að von sé á að það þéttist á milli þrýstilína, eða hlustiði ekki á veðurfréttir?? Finnst þetta sjarmerandi setning svipað sjarmerandi eins og að vera fræðimaður í Reykjavíkurakademíunni...sem ég btw. komst að hvar er í gær, ekki það að ég hafi leitað lengi samt:)

Af fréttum úr Odda er þetta helst:
Hér er gott að vera...betra samt þegar ég sit við mitt borð og í mínum stól, kann ekki við þegar fólk veður hér upp um allt og telur sig geta setið þar sem því lystir.
Í dag á degi verkalýðsins fylltist byggingin af krökkum sem eru að lesa Egilssögu og aðrar framhaldsskólabókmenntir fyrir próf...leyfi mér að efast um að þau séu háskólanemar enda miklir unglingar, tísta sem slíkir og tala sem slíkir. Aldrei hefði mér dottið í hug að fara inn í háskólabyggingu til að læra fyrir próf í framhaldsskóla en það er nú kannski önnur saga.
Ég er afgerandi best í því að þykjast læra...enginn kemst með tærnar þar sem ég hef hælana.
Ég er búin að vera með fjörfisk í hægra auga í 2 daga sem er ekki neitt magnað...þegar ég reyni að skrifa hristist allt og mér líður eins og ég þjáist af Parkinson. Meiri svefn, minna koffein og lubrication er víst ráðið við því. Ef fiskurinn lætur ekki segjast er mælt með örlitlu af botoxi...og ekki lýgur læknirinn.is:haha:

Vona að hann syndi úr mínu auga fljótlega því seint sprauta ég botoxi í augað á mér til varnar aumingjakippum...

Góðar stundir lömbin mín....elskiði friðinn:)

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 10:51:34 / arnrun

Heilræði!

Rigning i henni Rekjavík í dag...svo begðast krosstré sem önnur! Rigning fer í mig...þoli ekki að verða rennandi blaut við það eitt að hlaupa úr bíl og inn í hús. Er annars mætt í Oddann til að læra...náði borðinu mínu sem gleður mig afskaplega mikið:)

Þó að prófin séu að taka yfir líf mitt þessa stundina þarf ég nú samt að vinna fyrir saltinu í grautinn og það var einmitt komið að því í gærkvöldi. Fyrsta sem mér er tilkynnt þegar ég mæti kl 16 var að ég væri á leiðinni í leikhús um kvöldið...góðar fréttir og ég varð öll spennt:) Þangað til að ég fattaði að ég var í íþróttagallanum!! Af fenginni reynslu get ég því ómögulega mælt með því að fara í leikhús þjóðarinnar í slíkum klæðnaði...þetta var skelfilegt! Gömlu konurnar nýkomnar úr lagningu og í sínu fínasta horfðu á mig eins og ég væri hver annar utangarðsmaðurinn sem ætti í fá hús að venda...æi hvað mér leið eitthvað kjánalega:S Allavega...þá leyfi ég mér að mæla ekki með slíkri múnderingu á slíkum stað!

Guðríður: getum við farið í Hagkaup og keypt nammi í dag...langar svoooo???

Góðar stundir og góða helgi sílin mín:)

» 5 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 09:28:01 / arnrun

Hrikalegar draumfarir!

Mitt svarta hjarta kom fram á sjónvarsviðið af miklu trukki fyrir nokkrum dögum og mér hefndist svo sannarlega fyrir það í nótt. Þannig er mál með vexti að ég lét nokkur vel valin, afar ófögur orð falla um manneskju sem ég annars þekki ekkert allt of vel...en leiðinleg er hún fyrir utan að það vantar á hana aðra hendina. Sú takmörkun varð skotspónn míns svarta hjarta...maður lifandi hvað það var ljótt:S
Í nótt dreymdi mig að ég hefði misst aðra hendina...og vinkonan hló svo mikið, innilegur og ósvikinn "gott á þig" hláturinn nísti alveg inn að beini og ég er enn eftir mig eftir þessar ófarir. Ekki nóg með að hendin fengi að fjúka heldur átti ég á hættu að missa tunguna líka... sem mér þótti öllu verra þar sem ég sé það ekki gerast að ég taki upp á því að þegja svo mikið!
Held að þetta sé viðvörun til mín um að hafa stjórn á mínu svarta hjarta og hafa líka vit á því að þegja, þó ekki væri nema stundum, og síðast en ekki síst að hafa örlitla stjórn á mér þó mér þyki fólkið ekkert til að deyja fyrir.
Málið er í nefnd...ég leyfi ykkur að fylgjast með hvort að hjartað láti segjast;)

Afmæliskveðjur og knús til SigguF frá mér:)

» 7 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 22:44:19 / arnrun

Æi þessi tími...

...er ekki nógu skemmtilegur!! Verkefni dauðans um vellíðan á efri árum er að ganga frá mér og ég er grínlaust að fá taugaáfall enda fyrsta próf eftir viku og þetta verkefni tekur fullmikinn tíma frá mér....æi blabla boring;)
Núna standa yfir gríðarlegar framkvæmdir á háskólalóðinni...strákarnir frá Línuborun byrjuðu að grafa fyrir nokkrum dögum...já ekki fyrir nokkrum mánuðum eða vikum ónei heldur fyrir nokkrum dögum og prófin eru að byrja!! Nemendur fengu sendan póst þess efnis að vegna framkvæmda mætti búast við hávaðamengun og bílastæða skorti við helstu byggingar háskólans og að prófin yrðu á nýjum stöðum, í íþróttahúsi KR og á fleiri góðum stöðum. Í dag fengum við annan póst þar sem varað var við truflunum á símasambandi og netsambandi í nokkrum byggingum, eins og ekkert sé sjálfsagðara!! Hver byrjar á svona framvkæmdum korteri fyrir próf?? Þeir þykjast hafa góð rök fyrir að byrja ekki eftir próf...kaupi ekki svoleiðis djöfulsins vitleysu. Öll rök um að góð menntun bæti manninn eru fokin út um gluggann því það er hámenntað fólk sem stendur fyrir þessum framkvæmdum...er farin að halda að það séu engin takmörk fyrir því hvað fólk er mikið fífl:evil:
Það er búið að bíða eftir þessum framkvæmdum lengi...ég held að við getum beðið í nokkra daga í viðbót fyrir að fá að læra í friði.

Bless í bilinu...


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 21:22:16 / arnrun

Mér er svo sama um séra Jón...

...hreinlega gæti ekki verið meira sama. Sagan sem ég er um það bil að fara að segja ykkur er alls ekki í boði Helgu Fríðar...er reyndar frekar hrædd um að með þessu sé ég að stofna vinskapi okkar í hættu! En hún áttar sig einn góðan veðurdag;)

Gleðskapur er mér yfirleitt að skapi en það kemur fyrir að ég er ekki endilega upplögð í að hlusta á Sister Sledge, Donnu Summer og slíka tónlist...klárlega ekki í miklu magni og þaðan af síður þegar ég er ekki einu sinni að fá mér öl. Í gær var þessi tónlist spiluð fyrir mig, diskóljósin blikkuðu sínu breiðasta og fólk dansaði úti í garði í diskógallanum og með hárkollur í stíl!! Ég var að reyna að læra en lét mig samt hafa það lengi fram eftir enda þarna á ferðinni fólk sem birtist iðulega á síðum séð&heyrt. En sá tími kom að mér var alveg sama um hvurs kyns fólk ég átti við að eiga og hringdi eftir aðstoð, það var tíminn þegar skítamórals drengir fóru að spila skítamórals músik og sungu með!!! Þá var mér allri lokið...já elskurnar ég bað yfirvaldið um aðstoð og fékk;)

Það var góður á mér svipurinn þegar ég stóð úti í glugga, sigri hrósandi, þegar fólkið hélt sem leið lá niður í bæ...með kollurnar og í glansgöllunum!!! Jiminn hvað mér var skemmt:)


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 02:58:14 / arnrun

Svo mikil snilld...

Ég kúkaði á Jónsa í svörtum fötum af því að hjartað mitt er 2 nr. of lítið;)

Vertu með!

Veldu mánuðinn sem þú fæddist-

Janúar- Ég drap
Febrúar- Ég sló
Mars- Ég svaf hjá
Apríl- Ég horfði á
Maí- Ég fróaði mér með
Júní- Ég slefaði á
Julí-Ég hló að
Ágúst- Ég stakk
September- Ég skaut
Október- Ég naut ásta með
Nóvember- Ég handtók
Desember-Ég kúkaði á

Veldu núna afmælisdaginn þinn-

1. Hóru
2. Kærasta/una þína
3. Konu með HIV
4. Kynæsandi Dverg
5. Jólasvein
6. Playboykanínu
7. Giftri móðir
8. Kennara
9. Mömmu þína
10. Páskahérann
11. Köttinn
12. Djöflinum
13. Asískum skiptinema
14. Jónsa í svörtum fötum
15. Grjót
16. Hund
17. Klámstjörnu
18. Þvagprufu
19. Pung
20. Húsið þitt
21. Svín
22. Lampa
23. Kúk
24. Davíð Oddson
25. 50 cent
26. Kynskipting
27. Yddara
28. Birgittu Haukdal
29. Bjór
30. Tappatogara
31. Stólpípu

Veldu Þriðja stafinn í föðurnafninu þínu -

A- Af því að ég elska súkkulaði
B- Af því að mér leiddist
C- Af því að buxurnar mínar voru of þröngar
D- Af því að þarf alltaf að prumpa
E- Af því að hjartað mitt er tveim nr of lítið
F- Af því að ég fékk engar gjafir um jólin
G- Af því mér finnst egg góð
H- Af því að ég er á sýru
I- Af því ég misteig mig
J- Af því ég er með vörtu
K- Af því mér líkar Cheer
L- Af því að ég var skökk/skakkur
M- Af því ég var full/ur
N- Af því að mamma sagði mér að gera það
O- Af því ég er hýr
P- Af því ér er einmanna
Q- Af því mamma og pabbi eru alltaf að rífast
R- Af því að ég er gröð/graður
S- Af því mig langar að deyja
T- Af því ég hata skóla
U- Af því ég þarf að fróa mér
V- Af því að ég elska náttfata party
W- Af því að það róar mig
X- Af því að ég elska marmelaði
Y- Af því að ég elska prump
Ö- Af því ég er að safna rassahárum

» 17 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 22:41:50 / arnrun

Föstudagurinn langi...

...var tekinn snemma. Vakin upp úr 8 til að smyrja nesti, hita kakó og gera klárt fyrir ferð ársins upp á Víkurskarð. Var búin að fá lánaða stærðarinnar slöngu og þá meina ég stærðarinnar, svo stóra að við settum venjulega fólksbílaslöngu inn í hana og til varð þessi fíni fíni næstum því gúmmíbátur sem ferðaðist á ógnarhraða:) Fjölskyldan var mætt upp á skarð rétt fyrir 10 og upp úr því tók fólki að skila sér þangað líka. Nokkrir vélsleðar og þessi heimalagaði gúmmíbátur, snjóbretti, gott nesti og afar gott fólk gerði daginn með þeim eftirminnilegri. Ég, Sigrún, Þóra og Íris eyddum ekki tímanum í vitleysu og byrjuðum strax að láta draga okkur á bátnum og fórum hrikalega hratt áður en við létum draga okkur upp brekkuna og renndum okkur enn hraðar niður. Slangan stoppaði svo rétt við þjóðveg 1 okkur til mikillar ánægju enda gátum við ekkert annað en vonað það besta áður en við lögðum í hann.
Ég breyttist í krakka á svipstundu og gjörsamlega missti það í leiknum þennan daginn og þrátt fyrir vægast sagt vondar byltur gat ég ekki hætt. Ég reyndi að missa aldrei kúlið og ef að ég heyrði e-ar efasemdar raddir í samferðarmönnum mínum þá lét ég þær sem vind um eyru þjóta og setning dagsins og þessa páska er líklegast: "Það gerist þá ekkert annað en að við meiðum okkur". Þegar þessi orð voru látin falla þá fórum við aðeins of hátt en niður ætlaði ég og endaði í hengju og stökkpalli í framhaldi af henni þar sem ég og Þóra hentust einhverja metra upp í loftið og hún svo ofan á mér...shitturinn titturinn hvað það var vont en ég lét ekki segjast og hélt áfram. Endaði svo náttúrulega hálf lömuð daginn eftir...en orð að sönnu að það gerðist ekkert annað en að einhver meiddist en það var svo lítið;)
Ég kem til með að lifa lengi lengi á þessum degi!
Takk fyrir góðar stundir allir, gott trivial þar sem besta liðið sigraði ávallt, góðan mat og gott djamm:)

Heyrumst síðar lömbin mín...

» 4 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 18:40:12 / arnrun

Páskar og páskaegg...

Góðir páskar liðnir og ég komin í höfuðstaðinn aftur...ég ætlaði aldrei að hafa mig af stað suður í gær. Það er heillangt síðan ég fann þá tilfinningu að langa að vera lengur fyrir norðan en hún var að ganga frá mér í gær....en ég hafði mig af stað og komst á leiðarenda. Var svo rifin upp af rassgatinu í morgun (eða í hádeginu réttara sagt) og skipað úr náttfötum og í önnur svo ég gæti farið með Guðríði upp í skóla til að læra...úff hvað ég var alveg til að vera bara lengur í náttfötunum og gera ekki neitt. Einn daginn mæti ég í náttfötunum i skólann...líklega verður það fljótlega;)
Páskasagan fær að bíða betri tíma en eitt má þó ekki bíða...ég gleymdi að opna páskaeggið mitt og ekki nóg með það heldur gleymdi ég því fyrir norðan!!! Hvað er það??? Magga hugsaði sér gott til glóðarinnar og stútaði því í gær...er viss um að hún hefur ákveðið að segja ekki neitt þegar ég lagði af stað með ekkert páskaegg! Mamma: ég gleymi þessu seint og trúi ekki öðru en þetta hafi staðið aðeins í þér;)

Gott í bili...

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 16:41:32 / arnrun

Komin heim í heiðardalinn...

...sem er dásamlegt:) Skellti mér ásamt Tinnu frænku í lærdóminn í dag á ekki ómerkari stað en Þekkingarsetri Þingeyinga...fyrsti stökkpallur í það að fá starf í Reykjavíkur-akademíunni! Mér finnst það hrikalega töff að vera fræðimaður í þeirri akademíu eða bara í akademíum yfir höfuð...eitthvað svo sjarmerandi við þetta nafn og þennan titil;)
Annars eru bara páskar eftir korter og próf eftir hálftíma sem er ekki eins dásamlegt!!
Páskaeggið er klárt og bíður eftir mér á hillu sem ég sé á hverjum degi og það er ansi hreint merkilegt að það freistar mín ekkert sérstaklega...en það endar í grímunni á mér hvort heldur sem er:)

Gleðilega páska, gott djamm og góðar fjölskyldustundir sílin mín8)

Sendi alla mína engla og mikið fleiri austur á Egilsstaði til SigguF og hennar fólks á þessum erfiðu tímum.

Knús út í loftið...

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 22:25:43 / arnrun

Voða svipað ástand...

Ég fékk ansi skemmtilegt símtal í dag sem hljómaði eitthvað á þessa leið;
Einar: "Hæ elskan þetta er Einar"
Ég: "Uuu, hæ"
Einar: "þú komst aldrei"
Ég: "uuu"
Einar: "þú varst búin að tala um að koma í gær, en hvað?"
Ég: "uuu nú er ég ekki alveg að kveikja??"
Einar: "nú ertu búin að gleyma því?"
Ég: "ja.."
Einar: "æi er ég að hringja í vitlaust númer? Er að leita að xxx"
Ég: "já gott ef ekki...er hrædd um það"
Hef oft fengið svona hringingu en í dag var ég ekki alveg viss! Ég talaði við svo mikið af fólki í síðustu viku, hringdi svo mörg símtöl, fór svo oft á skeljarnar og hefði líklega sleikt fjöldann allan af rössum ef þess hefði þurft til að búa til gott partý þannig að það gat vel verið að ég hefði lofað honum Einari að hitta hann:S
Damn hvað þetta var óþægileg tilfinning! Það er einna helst snakk gaurinn sem gæti leikið svona á mig því ég var full lengi á skeljunum fyrir nokkra snakkpoka, en ég veit nafnið hans svo mér er sennilega óhætt:)



» 33 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 12:33:07 / arnrun

Frústreruð!!

Ég er öll einkennileg og búin að vera síðustu daga...sef illa, er pirruð í líkamanum. Hvað gekk fólki til að kjósa svona rangt?? Fyrir mína parta hef ég ekkert gaman af jarmi og einhverju helvítis milli vanilli mæmi og hefði aldrei og þá meina ég aldrei gefið svoleiðis ógeði mitt atkvæði.
Ég er andlaus og veit ekkert um hvað ég á að skrifa því ég er enn í fýlu og ætla að vera í nokkra daga í viðbót.
Jarm kemur aldrei til með að bjarga heiminum...það er gott að hafa það í huga!!

Það er líka gaman að segja frá því að Ína steig á svið á Players og söng Joplin lagið við gríðarlegar undirtektir og Siggu Beinteins og Kristjönu í bakröddum:)...en enginn virtist hafa áhuga fyrir því að fá Snorra á svið í hans eigin partýi8|...hvað er það???

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 13:56:42 / arnrun

Sungið til sigurs...

Er orðin öll spennt fyrir kvöldinu, happapeysan er orðin þurr, snakkið í húsi og allt að verða klárt:)

Góða skemmtun í kvöld, gangið hægt um gleðinnar dyr og kjósiði oft og RÉTT...ÁFRAM ÍNA:)

Bless í bilinu sílin mín


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 00:16:44 / arnrun

Stuðningsmannapartý Ínu!

Á næsta föstudag syngur Húsavíkurmærin Ína Valgerður í úrslitum í Idolinu. Slegið verður upp risapartýi á Players í Kópavogi það kvöld fyrir hennar stuðningsmenn. Idolið verður á nýjum tíma kl. 20:05. Á Players eru þrjú breiðtjöld, fjöldamörg sjónvörp og hljóðkerfi sem kemur öllu almennilega til skila. Eftir þáttinn tökum við á móti stuðningsmönnum Ínu sem verða í Vetrargarðinum og henni sjálfri auðvitað. Á Players þetta kvöld verður eitt allsherjar Idolpartý því Idolhljómsveitin Ísafold leikur fyrir dansi fram á rauða nótt. Þeir sem koma til að horfa á Idolið fá að sjálfsögðu frítt inn á ballið.


Hjálpumst nú að við að mynda skemmtilega stemmningu, mætum sem flest og kjósum rétt :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7